Það eru svo margir búnir að senda
mér svona í e-maili þannig að ég ákvað að herma bara
eftir Mörtu og skella þessu hérna inn.
Enjoy
1.HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANA?
Svona um 7 leitið þegar
ég þarf að fara í skólann en um helgar sef ég yfirleitt framyfir
hádegi.
2.EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER
VÆRI ÞAÐ?
Hmmm. Ég væri svo sem ekkert á móti því að snæða hádegisverð
með Opruh eða Matthew McConaughey.
3. GULL EÐA SILFUR
Silfur, er samt komin svolítið í gullið.
4. HVAÐ VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ?
Casanova, fór með körfuboltaliðinu. Góð mynd.
5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTURINN?
Nágrannar, Lost,
C.S.I, og fullt fleiri.
6. HVAÐ BORÐARÐU Í MORGUNMAT?
Ekki neitt, borða ekki morgunmat.
7. HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN
STÓR?
Ég er ekki farin að hugsa svo langt, en það væri
ekkert verra að vinna við einhverja stjórnunarstöðu,
tildæmis að reka Olís í Grindavík eins og pabbi. En hver veit. Ætla
bara að byrja á því að klára stúdentinn.
8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI?
Nei, hvernig spurning er þetta.
9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR?
Úff, allt í
kringum mig held ég.
10. HVAÐ ER MIÐNAFNIÐ ÞITT?
Rut
11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA
Bara sittlítið af hverju. Sveitasælan er samt voðalega
fín.
12. SUMAR EÐA VETUR?
Sumarið, no doupt about that.
13. UPPÁHALDS ÍS?
Svona kúluís með karamellu og hnetu. 
14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR Á POPP?
Salt
15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN?
Brúnn, svartur, blár og grænn.
16. UPPÁHALDS BÍLLINN ÞINN?
Bíllinn minn auðvitað... En annars er cruserinn hjá mömmu og pabba
að meika það líka.
17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU?
Skinku,
ost, grænmetirssósu, kál, gúrku, tómata og papriku. En síðan er
líka geggjað að fá sér fittý brauð með kjúklingaskinku, osti, gúrku
og tómötum og til að bleyta aðeins upp í þessu þá setja smá
kotasælu, en það er bara svona ef maður er í hollustunni. 
18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ?
Pfff. Ég fæ aldrei frí. En ætli það sé ekki vikurferðin til
Minneapolis fyrir síðustu jól, það var voðalega fínt. Vona að ég
fái einhvað spánarfrí í sumar. 
19. HVAÐA PERSÓNUEIGINLEIKA FYRIRLÍTURÐU?
Þoli ekki egó, alveg fara þau mest í taugarnar á mér, síðan finnst
mér líka neikvætt fólk ógó leiðinlegt.
20. UPPÁHALDSBLÓM ?
Ég veit ekki, ég fæ aldrei blóm.

21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVERSU LENGI
MYNDIRÐU BÍÐA ÁÐUR EN ÞÚ SEGÐIR FÓLKI FRÁ ÞVÍ?
Æji, það
veit ég ekki, læt ykkur vita þegar ég vinn.
22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN?
Venjulegt vatn
23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN?
Svartar flísar á golfinu og ljósar á veggnum, það er geggjað
flott.
24. HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI ÞINNI?
Alveg 6. Skiptir máli af hverju þeir eru?
25. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI?
Það er ekki gott að
segja, en auðvitað vill maður alltaf vera í Grindavík.
26. GETURÐU JÖGGLAÐ?
Hvað er það?
27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR?
Föstudagur og
laugardagur.
28. RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN?
Hvítvín.
29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI?
Bauð öllum stelpunum í heita rétti, síðan var bara pöbba chill
minnir mig.
30. ERTU MEÐ LÍFFÆRAGJAFAR KORT?
Nei, er það möst?
31. HVORT MYNDIRU VILJA EIGNAST STRÁK EÐA STELPU?
Skiptir engu máli!
32. HVAÐ KEMUR ÞÉR Í FÍLING?
Stelpurnar, geggjuð
tónlist og áfengi í hönd.
33. ERTU FEMINSTI?
Nei
34. FLOTTASTI LÍKAMSHLUTINN Á HINU KYNINU:
Fer eftir aðilanum, annars tekur maður oftast eftir augunum og
brosinu.
35. ELSKARÐU EINHVERN?
Já fjölskylduna mína alveg út af lífinu, kærastann og auðvitað
vinina.
36.SEGÐU EITTHVAÐ FALLEGT UM MANNESKJUNA SEM SENDI ÞÉR
ÞETTA:
Það eru svo margir búnir að senda mér þetta, en þið sem senduð eruð
öll æðisleg.